Fjórhjólaferðir
Jöklaveröld í Hoffelli býður upp á skemmtilegar ævintýraferðir á fjórhjólum, keyrt er inn í langan dal þar sem ósnortin náttúra ræður ríkjum, fallegur gróður, mikilfengleg fjöll, jökullinn og dýralíf. Mikið er lagt upp úr góðri leiðsögn í ferðunum og er þetta tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna til þess að eiga ævintýralegan og skemmtilegan dag saman í faðmi náttúrunnar.