Um okkur
Saga Hoffells
Um vefinn

Um okkur
Hoffell er innsti bærinn í Nesjum í Hornafirði, um 19 km. vestan við Höfn og 3 km. frá þjóðvegi nr. 1. Staðurinn er umvafinn stórbrotinni náttúru sem einkennist af miklum andstæðum og hrikaleika, allt frá flatri víðáttu til hárra fjalla, frá ísköldu jökulvatni til nýtanlegs jarðhita og frá ægilegum jökli til svartra sanda.

Auk náttúrunnar bjóðum við upp á gistiaðstöðu í gamla Hoffellsbænum sem byggður var 1940 og hefur nú verið gerður upp. Þar eru 10 uppábúin rúm auk aðstöðu til matargerðar.

Frá gistiheimilinu er um 3 km. akstur að Hoffellsjökli sem er ein helsta náttúruperlan á svæðinu. Þaðan liggja fjölmargar gönguleiðir þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Nánari upplýsingar um það hvernig þú finnur okkur má nálgast hér.