Náttúrulýsing
Hoffellsjökull
Jarðhiti
Steintegundir

Náttúrulýsing
Hoffellsbæirnir mynda bæjarþyrpingu við rætur Hoffellsfjalls sem rís um 800 metra yfir sjávarmál og veitir öruggt skjól fyrir hvössum norðanvindum. Frá bænum er mikið útsýni. Til austurs má sjá Nesjafjöllin sem teygja sig fram til sjávar, í suðri víðáttumikinn Hoffellssand, Skógeyjarsvæðið, Nesjasveit og Höfn í Hornafirði og í vestri Hornafjarðarfljót, Viðborðsfjall og Svínafell.


Vestan Hoffells gengur Hoffellssandur c.a. 3,5 km. til norðurs og endar við rætur Hoffellsjökuls. Þegar ekið er frá bænum áleiðis að jöklinum, má fyrst sjá borholu sem skilar nýtanlegu heitu vatni. Því næst er farið yfir litla á sem nefnist Landræsi og áfram inn sandinn með kjarri vaxnar hlíðar á hægri hönd og jökulinn beint framundan. Við jökulröndina stendur Geitafell sem er að mestu úr steintegundinni gabbró og þaðan liggja fjölmargar gönguleiðir.

Austan Hoffells gengur Hoffellsdalur 12 km. fyrst til norðurs og síðan vesturs og eftir honum miðjum rennur Hoffellsá. Í dalnum var á árum áður unnið silfurberg til útflutnings, en Hoffellslandið er afar auðugt af fjölbreyttum steintegundum.